AÐFERÐAFRÆÐI
UM LISTANN

HVAÐ ER TOPP100?

Topp100 er vikulegur listi yfir 100 vinsælustu lögin á Íslandi. Sami listi er á Spotify og uppfærist um leið og nýr listi kemur út.

HVERNIG ER HANN REIKNAÐUR?

Listinn vegur saman streymisveitur og útvarp: streymi á Spotify á Íslandi (65%), útvarpsspilun (25%), og vinsældalista Apple Music og YouTube á Íslandi (5% hvor). Hver mælikvarði er borinn saman við efsta lagið á honum, svo lag sem er mikið spilað í útvarpi getur komist á listann þótt það sé minna streymt.

Eins og staðan er núna telja lagalistar Rásar 2 og spiluð lög á Bylgjunni, FM957 og X977. Unnið er að því að bæta við öðrum útvarpsstöðvum.

HVENÆR KEMUR HANN ÚT?

Nýr listi kemur út alla föstudaga. Listi vikunnar miðar því við streymi og spilun útvarpsstöðva liðinnar viku.

SKÝRINGAR
SÆTIStaða lagsins á lista þessarar viku.
▲ / ▼Hve mörg sæti lagið fór upp eða niður frá síðustu viku.
NÝTTLagið er á listanum í fyrsta sinn.
AFTURLagið hefur áður verið á listanum og snýr aftur.
SÍÐ. VIKASæti lagsins vikuna á undan.
HÆSTHæsta sæti sem lagið hefur náð.
VIKURFjöldi vikna sem lagið hefur verið á listanum.
STREYMIFjöldi streyma á Spotify á Íslandi vikuna sem listinn nær yfir.
ALLUR LISTINN · 100 LÖG · UPPFÆRIST Á FÖSTUDÖGUM
HLUSTAÐU Á TOPP100 Á SPOTIFY
OPNA Á SPOTIFY